Slysavarnafélagið Landsbjörg og Rauði kross Íslands hafa gefið út veggspjald um endurlífgun við drukknun sem sent var á alla sundstaði.
Fyrstu viðbrögð:
- Endurlífgun við drukknun hefst á því að blása 5 sinnum.
- Hefja hefðbundna endurlífgun, sem er hnoða 30 sinnum og blása tvisvar sinnum þar til viðkomandi fer að anda sjálfur eða að sérhæfð aðstoð berst.
- Sama á við hjá hjá börnum og fullorðnum.